136. löggjafarþing — 125. fundur,  3. apr. 2009.

umræða um dagskrármál.

[11:47]
Horfa

Sigurður Kári Kristjánsson (S):

Herra forseti. Af því að talað er um þjóðina og fólkið í landinu held ég að hv. þm. Framsóknarflokksins, Birkir J. Jónsson, ætti að átta sig á því að fólkið í landinu vill bara hafa vinnu. Það vill fá að vinna, það er svo einfalt. (Gripið fram í.) Það vill að ríkisstjórnin komi með einhverja tillögu um hvernig byggja á upp atvinnu í landinu. Við erum að reyna að benda á það og er ágætt að hæstv. forsætisráðherra hlusti á það. Við viljum fá einhverjar úrlausnir, einhverjar aðgerðir ríkisstjórnarinnar varðandi atvinnumál námsmanna og uppbyggingu atvinnulífsins í landinu. Svo koma snillingarnir og halda því fram að slíkar beiðnir séu eitthvert málþóf. Auðvitað er það ekkert málþóf. Hæstv. forsætisráðherra getur kennt þeim allt um það vegna þess að hún hefur á sínum langa ferli í þinginu einmitt stundað málþóf. Það gerum við ekki. (BJJ: Jú.) Það gerum við ekki. Það væri auðvitað óskandi að þingið hefði fleiri snillinga innan (Forseti hringir.) sinna raða eins og hv. þm. Birki J. Jónsson, (Forseti hringir.) Lúðvík Bergvinsson og Árna Pál Árnason (Forseti hringir.) sem virðast yfir alla hafnir. (Forseti hringir.) Við hinir finnum auðvitað (Forseti hringir.) til smæðarinnar þegar þessir snillingar tala.