137. löggjafarþing — 20. fundur,  16. júní 2009.

tilkynning um dagskrá og tilhögun þingfundar.

[13:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill geta þess að að loknum fyrirspurnatíma verður settur nýr þingfundur þar sem fyrir verða tekin þrjú mál til 3. umr. og atkvæðagreiðsla um þau.

Um klukkan tvö í dag, að loknum umræðum um störf þingsins, fer fram umræða utan dagskrár um nýtingu orkulinda og uppbyggingu stóriðju. Málshefjandi er hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson. Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.