137. löggjafarþing — 23. fundur,  19. júní 2009.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

118. mál
[13:59]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Eitthvað gengur mér illa að skýra út þær tölur sem hér er verið að glíma við, eða a.m.k. tölum við í kross. Áætlun fjárlaga var 153 milljarðar. Til viðbótar kemur leiðrétting á vaxtabætur upp á 20 milljarða og það er ekki gert ráð fyrir því að vinna upp tekjur á móti því. Því er áætlað að niðurstaðan varðandi það fari í 173 milljarða í halla. (Gripið fram í.) Þannig er þetta sett upp. Það er búið að áætla að það þurfi viðbótarniðurskurð um 20 milljarða til að mæta annars vegar tekjufallinu, hins vegar rekstrargjöldunum, þ.e. vegna Atvinnuleysistryggingasjóðs. (ÓN: 193 milljarðar.) Það er rétt en það á að taka það niður í 173. Það er niðurstaðan sem er verið að glíma við og það er það sem við erum að slást við hér, að sýna fram á að það gangi eftir og þá erum við í raunveruleikanum erum við að tala um að það sé óbreytt í fjárlagahlutanum. Við ætlum að standa við þá áætlun sem við gerðum með Sjálfstæðisflokknum fyrir þetta ár en ætlum að standa með því að bæta þarna í varðandi tekjur og útgjöld, (Forseti hringir.) sérstaklega Atvinnuleysistryggingasjóður, þessa 20 milljarða til að ná þessu niður í að vera óbreytt eins og áætlað var fyrir. (Forseti hringir.) Þannig byrjum við svo niðurskurðinn með 56 milljörðum á næsta ári.