137. löggjafarþing — 23. fundur,  19. júní 2009.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

118. mál
[14:21]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég fagna því að hv. þingmaður kynni sér tillöguflutning og málflutning okkar Vinstri grænna og minn á Alþingi í desember. Þá sæi hann t.d. að við ein flokka lögðum til umtalsvert aukna tekjuöflun til að minnka halla á ríkissjóði og til að hægt væri að draga úr tilfinnanlegum niðurskurði á nokkrum sviðum. Ég flutti þrjú frumvörp um tekjuöflun upp á eitthvað um sjö milljarða kr. og sýndi með því að ég hefði ekki minni áhyggjur af væntanlegum halla á ríkissjóði en hver annar. Við lögðum líka til sparnaðar- og niðurskurðartillögur. En þessu getur hv. þingmaður flett upp.

Í öðru lagi að hér hafi ekki verið veittar upplýsingar eða þeim almennt miðlað eins og venja er þá hafna ég því alfarið. Ég fullyrði að það hafa meiri upplýsingar verið veittar af hálfu stjórnvalda um þróun efnahags- og ríkisfjármála undanfarnar vikur og mánuði en nokkurn tíma áður hefur verið gert á þessum árstíma. (GÞÞ: Á þessum árstíma?) Hvaða upplýsingar höfðu þingmenn í höndum í maí og í júní 2008 um fjárlagavinnu þáverandi ríkisstjórnar? Engar. Ég hef rætt við stjórnarliða úr þáverandi ríkisstjórn sem sögðu: Við vissum ekki neitt heldur þó að við værum stuðningsmenn þessarar ríkisstjórnar. Þannig var það nú. Þá var þetta unnið algerlega lokað inni í ráðuneytunum. Nú hafa tugir manna verið í samráðsferli um þetta mál, bæði úr stjórn og stjórnarandstöðu, meðal aðila vinnumarkaðarins o.s.frv.

Varðandi hallatölur á ríkissjóði vil ég bara, til að fyrirbyggja misskilning, segja að það eru tvenns konar 20 milljarða tölur á ferðinni. Annars vegar eru fjárlögin upp á 153 milljarða halla í ár. Hins vegar stefnir í yfir eða um 20 milljarða halla í viðbót ef ekkert verður að gert. Í töflu í frumvarpinu á bls. 11 er hins vegar að finna hallatölu sem er færð inn sökum þess að þar er um að ræða áfallnar verðbætur af skuld ríkissjóðs (Forseti hringir.) við Seðlabankann sem ekki eru gjaldfærðar í ríkisreikningi en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur hins vegar að eigi að telja til hallatölunnar.