137. löggjafarþing — 23. fundur,  19. júní 2009.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

118. mál
[15:27]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við hv. þm. Skúli Helgason erum sammála um þá hluti sem við alþingismenn eigum að gera hér. Hlutskipti okkar er reyndar ólíkt vegna þess að ég er í stjórnarandstöðu og hvort sem mér líkar það betur eða verr eiga tillögur okkar í stjórnarandstöðunni erfiðara með að fara í gegnum þingið en t.d. ef maður er í ríkisstjórn vegna þess að það er þeirra að framkvæma. Það er staðreynd að þrátt fyrir fögur orð ríkir enn þá ráðherraræði á hinu háa Alþingi og allar eftirlitsstofnanir sem teknar hafa verið úr sambandi með því miður slæmum árangri, eru veikar. Við þurfum að efla eftirlitshlutverk Alþingis, við þurfum að efla þær stofnanir sem fylgjast með fjárreiðum ríkisins. Við þyrftum kannski líka að koma upp stofnun sem fylgir því betur eftir hvort ríkisstofnanir fari fram úr fjárlögum á hverju einasta ári, sem virðist vera orðin venja fremur en tilviljun og margir virðast leika þann leik. Við getum svo sem rætt það hvort grunnstofninn fyrir tekjum þeirra á hverju ári sé réttilega mældur.

En Samfylkingin og Vinstri græn eru í ríkisstjórn, þau hafa ekki sýnt það í verki að þau séu reiðubúin að breyta þó að þau hafi verið í samstarfi frá því í janúar en við skulum þó gefa þeim séns og ég vonast til hins besta af þessum tveim flokkum.