137. löggjafarþing — 23. fundur,  19. júní 2009.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

118. mál
[17:45]
Horfa

Lilja Mósesdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef reyndar ekki getað skilið almennilega hver ástæðan er fyrir því að peningastefnunefnd telur ómögulegt að lækka vexti án þess að hafa áætlun um aðhaldsaðgerðir í ríkisfjármálum fyrir framan sig. Hallinn á ríkissjóði hefur ekki verið að leiða til aukinnar verðbólgu og hefur heldur ekki þýtt að ríkið sé að ýta í burtu eða ryðja í burtu einkageiranum af lánamarkaði. Þvert á móti virðist vera nóg framboð af fjármagni og að vandamálið sé fyrst og fremst að fyrirtækin í landinu fá ekki lánað fjármagn á þeim háu vöxtum sem eru í boði.

Yfirleitt þegar verið er að taka ákvörðun um vaxtastig er gengið út frá því (Forseti hringir.) hver verðbólguþróunin er, og þess má geta (Forseti hringir.) að þriggja mánaða verðbólga er ekki nema 4%.