ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Það er einfaldlega þannig að fulltrúar ríkisins á alþjóðavettvangi hafa heimild, almennt stöðuumboð til að skrifa undir samninga. Þeir þurfa svo eftir atvikum staðfestingu þings í sumum tilvikum. En það er ekki þannig að þetta sé plagg sem sé að engu hafandi að þjóðarétti. Það er einfaldlega grundvallaratriði þjóðaréttar að undirrituð skjöl af fulltrúum ríkja (Gripið fram í.) hafa vægi að þjóðarétti. (Gripið fram í.) Það er almenn heimild til handa utanríkisráðherra að gera samninga sem ekki þurfa samþykki þingsins við og það er almennt unnið á þeim (Gripið fram í.) grunni að af hálfu stjórnvalda eru gerðir samningar við aðrar þjóðir án þess að þeir séu sérstaklega lagðir fyrir þing í öllum tilvikum. Í ákveðnum tilvikum, sérstaklega (Gripið fram í.) þegar um fjárútlát er að ræða eða þegar 21. gr. stjórnarskrárinnar er í húfi þá þarf samþykki þingsins til. Það er rangt að (Gripið fram í.) undirritaðir (Forseti hringir.) samningar íslenskra samningamanna í viðskiptum við aðrar þjóðir séu að engu (Forseti hringir.) hafandi. Það er bara einfaldlega rangt. (Gripið fram í: Þetta er yfirlýsing.)