137. löggjafarþing — 49. fundur,  11. ág. 2009.

kjararáð o.fl.

114. mál
[16:46]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og kunnugt er hafa þingmenn Sjálfstæðisflokksins gagnrýnt þetta frumvarp og bent á að í þessu felist í besta falli nokkur hræsni að ætla að markmið þess nái fram að ganga. Ég vil spyrja hv. þingmann í ljósi þess að í hv. viðskiptanefnd var símafundur með Mats Josefsson nokkrum sem er mönnum að góðu kunnur. Hann hefur gagnrýnt að Bankasýslan sem var til umræðu áðan — að væntanlega yrði erfitt fyrir … Virðulegi forseti, það er dálítið erfitt að eiga orðastað við hv. þingmann þegar hann er upptekinn á öðrum fundi.

Mats Josefsson sagði að erfitt yrði að ná erlendri sérfræðiþekkingu inn í Bankasýsluna, að ráða erlenda sérfræðinga til starfa þar vegna þessarar launastefnu ríkisstjórnarinnar. Ég ítrekaði þessa spurningu til hans á símafundi milli 2. og 3. umr. og þá sagði hann að það hefði ekkert breyst, hann hefði enn þá áhyggjur af þessu efni. Hann sagði að það væri þó sennilega hægt að ráða erlenda ráðgjafa til að vinna ákveðna vinnu. Því spyr ég hv. þingmann: Verður það þannig sem farið verður í kringum þessi ágætu lög, eða ekki svo ágætu lög, að ekki verður hægt að ráða hæfasta fólkið til starfa vegna þess að þau eru launuð samkvæmt því en farið fram hjá þeim með því einfaldlega að ráða ráðgjafa þar sem ekkert launaþak er? Hvað er þá unnið með því? Er þetta ekki einmitt eins og við höfum sagt, nokkur hræsni?