staða Icesave-samningsins.
Frú forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að þetta er mjög erfið staða og hún getur líka verið háskaleg fyrir Íslendinga. Ég tel hins vegar að íslenskir ráðamenn hafi talað hreint út úr pokanum og sagt ærlega hvernig staðan er, bæði ég og fleiri, við innlenda og erlenda fjölmiðla, það hlýtur að draga upp alvarleika stöðunnar gagnvart Bretum og Hollendingum. Íslendingar eru þjóð sem er í erfiðustu fjármálakreppu sem yfir hana hefur dunið, þeir eru sennilega í verstu gjaldeyriskreppu sem nokkur þjóð hefur lent í hlutfallslega. Og það er ábyrgðarhluti fyrir hollensku og bresku ríkisstjórnirnar ef þær ætla ofan á þetta að tefla málum með þeim hætti að hér blasi hugsanlega við stjórnarkreppa vegna þess að það er raunhæfur möguleiki og það verða þessar ríkisstjórnir að horfast í augu við. Vilja þær með þessum hætti láta kné fylgja kviði? Ég tel að það sé ærlegast að segja það hreint út við þær og það hef ég gert, bæði í fjölmiðlum og augliti til auglitis.