138. löggjafarþing — 31. fundur,  25. nóv. 2009.

námslán til skólagjalda á háskólastigi.

223. mál
[18:25]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Anna Pála Sverrisdóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég vil spyrja hæstv. menntamálaráðherra um námslán til skólagjalda á háskólastigi innan lands að þessu sinni, svo ræðum við seinna um námslán til skólagjaldagreiðslu erlendis, sem er líka stórt mál.

Þetta er hluti af þeirri stóru umræðu sem er fjármögnun háskólastigsins og ég vil benda á það hér að kerfið á Íslandi hefur einhvern veginn orðið þannig að nemar í einkareknum háskólum eru meira ríkisstyrktir en nemendur við opinberu háskólana. Fyrirkomulagið, svo við förum bara stuttlega í gegnum það varðandi greiðslur með nemendum, er þannig að hver nemandi á háskólastigi fær greitt með sér frá ríkinu. Þetta eru að sjálfsögðu mismunandi upphæðir enda kostnaður við námið misjafn. Þetta greiðir ríkið, reyndar ekki alltaf með öllum nemendum sem hefur verið vandamál í gegnum tíðina og er annað mál.

Staðan í dag er sem sagt sú að einkareknir háskólar taka skólagjöld. Þau eru niðurgreidd að miklu leyti í gegnum það jöfnunartæki sem Lánasjóður íslenskra námsmanna er. Það má áætla eða hefur verið slumpað á það í gegnum tíðina, og auðvitað eru margir hagrænir þættir sem hafa áhrif á prósenturnar, en það má áætla gróft á litið að námslán í gegnum Lánasjóð íslenskra námsmanna séu niðurgreidd um helming af íslenska ríkinu svo þarna erum við í rauninni líka komin með styrki til náms.

Með því að Lánasjóður íslenskra námsmanna er tæki eins og ég segi einmitt til jöfnunar finnst mér það stinga svolítið í stúf að þeir nemendur sem velja að stunda nám við einkarekna háskóla skuli fá meira greitt með sér af hálfu ríkisins. Þetta er að sjálfsögðu mikil pólitík og ég vil spyrja hæstv. menntamálaráðherra:

1. Telur ráðherra eðlilegt að ríkissjóður borgi í raun meira með hverjum nemanda í einkareknum háskóla en opinberum, með því að námslán til skólagjalda eru niðurgreidd um helming af ríkinu?

2. Ef svo er ekki, hyggst ráðherra þá gera eitthvað í málinu?