ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að taka undir orð hv. þm. Ragnheiðar Ríkharðsdóttur um þau ummæli sem hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir lét falla í ræðustóli undir liðnum fundarstjórn forseta. Ég held að það sé algerlega á hreinu — og það eru svo sem ýmis önnur orð sem fallið hafa á milli þingmanna þótt það sé ekki úr ræðustólnum — að þó að við höfum mismunandi skoðanir á þessu máli er engin ástæða til að fara að ásaka hvert annað fyrir það. Við höfum reynt að gæta okkar, við höfum reynt að færa rök fyrir máli okkar, við höfum haldið fjöldann allan af ræðum og ég geri ráð fyrir að þær verði töluvert fleiri miðað við að búið er að ákveða að halda fund í kvöld.
Frú forseti. Ég ítreka að það eru mál sem eru aftar á dagskránni sem við erum fullkomlega tilbúin til að færa fram og koma í nefnd. Ég hvet frú forseta til að taka undir þá tillögu stjórnarandstöðunnar.