rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008.
Hæstv. forseti. Það er mikið verk að vinna að vinna okkur upp úr því efnahagshruni sem við stöndum frammi fyrir en það er ekki síður verk að vinna að vekja traust hjá þjóðinni gagnvart Alþingi og gagnvart stjórnsýslu landsins. Það tekur tíma. Þetta er hugsanlega bara fyrsti prófsteinninn á því ferli. Alþingi verður að vera þess megnugt að standa undir þeirri ábyrgð. Ég treysti því og veit að þingið mun gera það.
Engum dettur í hug að sú níu manna nefnd sem hér er lagt til að verði skipuð muni ein og sjálf liggja yfir þeim verkefnum sem frá rannsóknarnefndinni koma. Að sjálfsögðu mun þessi nefnd leita sér sérfræðiaðstoðar um þau erfiðu mál sem koma fram. Ég tel mjög mikilvægt að við gerð fjárlaga núna verði tryggt að nefndin sem skipuð verður fái markað framlag á fjárlögum til að standa undir þeim verkefnum sem hún þarf að sinna.
Við þurfum líka að gæta þess að fara ekki fram úr okkur, því að í þeim mikla hafsjó upplýsinga sem rannsóknarnefndin hefur getað unnið með eru mál sem koma inn á persónuverndina. Það er líka mikill áhugi alls staðar úti í heimi að komast í þessi gögn, að geta notað þetta ástand sem hér hefur skapast og niðurstöður rannsóknarnefndarinnar til að vinna að enn frekari rannsóknarverkefnum og það verður að gæta þess að það sé hægt. Við þurfum að horfa á öll þessi sjónarmið og taka tillit til þeirra.