störf viðræðunefndar um einkaframkvæmdir.
Frú forseti. Nú er mér nokkur vandi á höndum, það bættust við allmargar fyrirspurnir.
Í fyrsta lagi um veggjöldin, hvort þetta verði eingöngu framkvæmdir þar sem þau bera kostnaðinn að fullu. Nei, það er ekki einskorðað við það. Í einhverjum tilvikum gæti orðið um blöndu að ræða. Við getum tekið framkvæmdir eins og Vaðlaheiðargöng, en útreikningar sýna yfirleitt að veggjöld muni ekki ná að standa undir nema svona 50–60% af framkvæmdakostnaði þar þannig að almennilega gangi miðað við gjaldtökuna. Þá er spurningin sú: Yrði um blandaða framkvæmd að ræða þar sem gjaldtakan stæði undir hluta framkvæmdakostnaðarins en einhver hluti yrði greiddur úr vegasjóði?
Varðandi Landspítalann tek ég undir orð hv. þingmanns, það þarf að vanda umbúnaðinn þar. Það er allt eins líklegt að flutt verði frumvarp til sérlaga um þá framkvæmd, að það verði settur sérstakur lagarammi utan um þessa risastóru framkvæmd sem ég held reyndar að sé æskilegt. Þá kemur Alþingi sem sagt strax þannig að málinu.
Ég vil minna á að lífeyrissjóðirnir eru til hliðar við þetta að stofna sinn stóra fjárfestingasjóð, þar sem þeir ætla að verja umtalsverðum fjármunum á næstu þremur árum eða svo til fjárfestinga í atvinnulífinu. Það verður að sjálfsögðu lyftistöng í öllu tilliti, hvort sem það yrði endurfjármögnun fyrirtækja, að taka þátt í hlutafjáraukningu eða annað slíkt sem mun örugglega hleypa krafti í starfsemina sem þar er á bak við.
Vegaframkvæmdirnar sem á dögunum var ákveðið að bjóða út, þ.e. Suðurlandsvegur, áfanginn frá Lögbergsbrekku upp að Litlu kaffistofunni, sem og Vesturlandsvegur um Mosfellsbæ, eru boðnar út sem venjulegar vegaframkvæmdir og Vegasjóður stendur á bak við þær. Þó er að sjálfsögðu þeim möguleika haldið opnum að þær kæmu inn í nýtt fyrirkomulag ef niðurstaðan yrði t.d. einhver stór veggjaldasjóður sem tæki til hraðbrautanna til og frá höfuðborginni.
Samgöngumiðstöðin ætti að geta farið fljótt í framkvæmd og sömuleiðis það sem ég upplýsti hér um Landspítala – háskólasjúkrahús.
Varðandi einkaframkvæmdirnar og bókhaldsleg atriði í þeim efnum er aðalatriðið í raun og veru (Forseti hringir.) að um sé að ræða tekjur sem standa undir framkvæmdinni og áhættan sé afmörkuð við það. Geta þær staðið utan ríkisreiknings en skuldbindingin er að sjálfsögðu sýnd og henni haldið til haga á hverjum tíma.