stjórnarskipunarlög.
Frú forseti. Eins og ég sagði áðan er gott og gagnlegt að ræða agnúa sem koma upp við róttækar breytingar eins og að gera landið að einu kjördæmi. Meginmálið er þó, og við skulum hafa það í huga, að með því næst fullkominn jöfnuður á milli kjósenda þannig að misvægi atkvæða, og um leið misvægi mannréttinda, er ekki lengur til staðar. Stjórnmálaflokkarnir fengju nákvæmlega þann þingmannafjölda sem atkvæði þeim greidd segðu til um, fyrir utan að við sætum uppi með einfalt, gott og gagnsætt kosningakerfi.
Ég held að það verði einmitt mikil frelsun fólgin í því fyrir marga stjórnmálamenn að vera kosnir á landslista með landið allt sem sitt kjördæmi en vera ekki bundnir beint, og meira og minna óbeint, á klafa þrengri kjördæmishagsmuna. Þeir skila yfirleitt engum sérstökum árangri og eru aldrei til góðs af því að yfirleitt viljum við öll berjast fyrir hagsmunum Íslendinga allra. Hvort sem við búum á Suðurlandi eða Vestfjörðum varðar okkur nákvæmlega jafnmikið um t.d. hvernig kvótakerfið hefur leikið margar byggðir úti á landi og lagt sumar þeirra í rúst á meðan veiðiheimildir hafa safnast saman annars staðar og dafnað. Það er óréttlæti sem við þurfum líka að taka á og vinna gegn.
Aftur að kostum og göllum þess að gera landið að einu kjördæmi. Kostirnir eru yfirgnæfandi af því að við finnum leiðir til að vinna á móti ágöllum eins og hugsanlegu auknu flokksræði, sem er nú þegar til staðar en er misjafnt eftir flokkum og foringjum hverju sinni. Sumir foringjar gerast drottnunargjarnir og auka mjög flokksræðið í sínum flokkum, nefni ég nú engin nöfn, en aðrir draga úr því með persónum sínum og stjórnunarstíl.
Við skulum endilega ræða þetta því allt þetta þarf að sníða að nýju fyrirkomulagi. Ég er sannfærður um að landið verður gert að einu kjördæmi og það væri mjög ánægjulegt ef stjórnlagaþing, sem fjallar vonandi um þessi mál á næstu mánuðum, kæmist að sömu niðurstöðu. Það gæti flýtt mjög fyrir þessu máli. Þetta er mjög mikið (Forseti hringir.) grundvallar- og umbótamál, að gera landið allt að einu kjördæmi og jafna atkvæðisrétt allra Íslendinga til fulls.