138. löggjafarþing — 134. fundur,  9. júní 2010.

stjórnlagaþing.

152. mál
[15:07]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Árna Þór Sigurðssyni fyrir ræðu hans áðan, sem var ágætlega greinargóð. Ég fagna því hins vegar sem hv. þm. Þór Saari, afmælisbarnið okkar, sagði áðan að skynsamlegast væri að fresta málinu og taka upp að nýju í ágúst/september og það væri kannski spurning hvort hv. þm. Árni Þór Sigurðsson sé sammála slíkum viðhorfum og þá í þeirri viðleitni að hægt sé að ná betri samstöðu um málið hér á þingi og snúa sér að öðrum málum sem brenna á heimilum og fyrirtækjum á Íslandi.

Ég hef það á tilfinningunni að ekki sé mikil sannfæring um það frumvarp sem við ræðum um ráðgefandi stjórnlagaþing meðal þingmanna Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Ég les það út úr því að þegar ég leit yfir salinn í gærkvöldi og aftur í dag þá voru fáir félagar hv. þingmanns í salnum, fáir sem sýndu málinu áhuga. Ef minnið svíkur mig ekki er hv. þm. Árni Þór Sigurðsson eini þingmaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs sem virðist ætla að taka þátt í þessum umræðum sem við erum líklega öll sammála um að sé mikilvægt mál. Við erum öll sammála um að fara þurfi fram endurskoðun á stjórnarskránni og að breyta þurfi ákveðnum ákvæðum hennar. Okkur greinir á um aðferðina. Við höfum rétt fram ákveðna sáttarhönd ásamt fleirum og einn helsti talsmaður stjórnlagaþings utan þings hefur meira að segja lagt fram sáttatillögu og ég skil ekki af hverju þingmenn geta ekki tekið undir slíkt.