staðan í makrílviðræðunum.
Frú forseti. Ég þakka fyrir umræðuna og tek undir með þeim sem hér hafa þegar talað og rætt um mikilvægi þess að halda á lofti málstað Íslands í þeim viðræðum og deilum við nágrannaþjóðirnar sem við eigum nú um nýtingu sjávarauðlindarinnar. Það er einkennilegt að þegar við eigum í viðræðum við Noreg, Færeyjar og Evrópusambandið skuli hið síðasttalda senda bréf hingað til lands með ásökunum um að Ísland beri eitt ábyrgð á því að samanlögð kvótaúthlutun í makríl sé umfram sjálfbærnimörk stofnsins.
Eitt er út af fyrir sig að sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins skuli blanda sér í málið með þessum hætti en hitt vekur auðvitað furðu að stækkunarstjórinn skuli einnig gera það og yfirmaður utanríkisviðskiptamála. Í því eru sannarlega falin skilaboð frá Evrópusambandinu sem verða ekki misskilin að mínu mati og við hljótum að mótmæla þeim á þeim vettvangi þar sem við höfum tækifæri til.
Það kemur vissulega úr hörðustu átt að Evrópusambandið gagnrýni Ísland fyrir óábyrga umgengni um sjávarauðlindina því að sambandinu hefur gersamlega mistekist að halda í fiskstofninn í lögsögu sambandsins. Ofveiði, offjárfesting og brottkast sem þar viðgengst eru skýrustu dæmin þar um. Makríllinn er kominn inn í okkar vistkerfi og verður hér áfram ef að líkum lætur og því hljótum við að eiga fullan rétt til þess að sitja við samningaborð um nýtingu þessa stofns. Við eigum að sjálfsögðu að gæta þess iðulega að fara að leiðbeiningum vísindamanna okkar hvað varðar nýtingu í þessu efni eins og öðrum og við megum aldrei missa sjónar af þeim markmiðum okkar að nýta auðlindir á sjálfbæran hátt. Makríllinn er nú þegar ofveiddur innan lögsögu Evrópusambandsins og þess vegna þurfum við að sjálfsögðu að fara gætilega með nýtingu hans. Sú staða getur hæglega komið upp að fiskstofn eða fiskstofnar sem við höfum byggt á hingað til færi sig um set inn í lögsögu annarra.
Frá sjónarmiði umhverfis- og náttúruverndar er sjálfbær og ábyrg nýting fiskstofnanna grundvallaratriði og þar eigum við að ganga á undan með góðu fordæmi eins og við höfum iðulega gert og það er við þau sjónarmið sem okkar (Forseti hringir.) ríkustu skyldur eru.
Ég ítreka stuðning minn við þau sjónarmið sem íslensk stjórnvöld hafa sett fram í þessu máli og hvet þau áfram í því efni.