rannsókn á starfsemi fjármálafyrirtækja.
Virðulegi forseti. Þetta verður frekar meðsvar varðandi þær afskriftir sem hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson nefndi að þyrftu að verða opinberar. Þrátt fyrir að það sé svolítið sérkennilegt í samfélagi þar sem allir eru sáttir við alla þá erum við ekki í slíku samfélagi. Við erum í samfélagi þar sem ríkir mikil tortryggni og réttlætiskennd manna er verulega brugðið. Ég held að þetta sé ein leið til að sú tortryggni hverfi, að sýna hreinlega hvað er í gangi.
Ástæðan fyrir að ég nefndi einmitt þessar opinberu verklagsreglur og þetta tímaplan fyrir 2010 var einfaldlega sú sem hv. þingmaður nefndi, vegna sölu Landsbankans á Vestia eignarhaldsfélaginu yfir til framtakssjóðs lífeyrissjóðanna. Þar voru þessar reglur einmitt ekki virtar. Þar var ekki sambærileg starfsemi eða hagað sér með svipuðum hætti og við nefndum í sambandi við það sem þróaðri fjármálamarkaðir hefðu gert þar sem spilling hefur áður viðgengist og menn hafa hreinlega dregið lærdóma þar af og komið sér upp reglum og aðferðum til að koma í veg fyrir hana.
Ég kem fyrst og fremst upp til að taka undir þetta. Ég trúi því líka að hægt sé að ná meiri hluta strax fyrir þessu verkefni í viðskiptanefnd og ljúka því af því að það er mikilvægt.