viðbrögð við dómi um gengistryggð lán.
Virðulegi forseti. Þann 16. september sl. dæmdi Hæstiréttur ákveðna tegund af lánum í erlendri mynt ólöglega og í kjölfarið kynnti hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra viðbrögð við þeim dómi. Í örstuttu máli eru viðbrögðin á þann veg að skipta eigi skuldurum upp þannig að það sé einungis hluti skuldara sem eigi að fá að njóta dómsins, ef þannig má að orði komast, og skiptingin á að vera á milli einstaklinga og fyrirtækja.
Um 91 eða 92% af íslenskum fyrirtækjum eru örfyrirtæki, þ.e. fyrirtæki sem hafa færri en 10 starfsmenn, en látum það liggja á milli hluta. Við sjálfstæðismenn báðum um fund, ég bað um að fundað yrði um það í viðskiptanefnd strax í kjölfar þessa dóms og var orðið við því í byrjun þessarar viku. Við þekkjum það, það er viðurkennt og ég held að menn séu alveg sammála um að þau úrræði sem við höfum farið í á þinginu hafa ekki virkað þegar kemur að málefnum skuldara. Ein af ástæðunum er án nokkurs vafa sú að mjög mikil fljótaskrift hefur verið á vinnunni, bæði í ráðuneytum og á þinginu. Hún hefur verið unnin hratt og ekki nógu vel og við sitjum uppi með nærri sama vanda og við byrjuðum með.
Ég vildi spyrja hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra hvernig hann ætlar að framkvæma þetta. Ég held að það sé mjög mikilvægt að hann upplýsi þá aðila sem hafa hagsmuna að gæta þar sem (Forseti hringir.) mikilvægt er að við skoðum þetta sem allra fyrst.