ályktun flokksráðsfundar VG um aðildarstyrki ESB.
Frú forseti. Við höfum á undanförnum vikum rætt þó nokkuð um aðildarumsóknina að Evrópusambandinu. Í því sambandi hefur gjarnan verið rætt um aðlögunarviðræðurnar, þ.e. þá kröfu og hugmynd Evrópusambandsins að á meðan á viðræðum stendur undirbúi umsóknarríkið stjórnsýslu sína, reglur og lagaumhverfi.
Um helgina fór fram fundur hjá Vinstri grænum þar sem tekist var aðeins á um þessi mál. Skilaboðin sem komu út af fundinum eru dálítið misvísandi þannig að mig langar til að biðja hæstv. fjármálaráðherra sem er formaður Vinstri grænna um að skýra línur, einkum hvað snertir skilaboð frá fundinum um viðtöku styrkja og breytingar á stjórnsýslunni. Einn stjórnarliða sem sat þennan fund hefur túlkað niðurstöðu fundarins þannig að hún kalli á algerlega nýja nálgun í viðræðuferlinu. Það hlýtur að vera horft til þess hvort og hvernig einstök ráðuneyti taka við hinum svonefndum IPA-styrkjum og nýta þá til að undirbúa stjórnsýsluna heima fyrir mögulega aðild. Í því sambandi virðist stefna í það, allt eftir því hvor stjórnarflokkurinn stýrir einstökum ráðuneytum, að styrkjum verði ýmist veitt viðtaka eða ekki. Á sumum sviðum stjórnsýslunnar verður þannig ráðist í ákveðna aðlögun en á öðrum sviðum ekki.
Það er þetta sem mig langar að bera undir hæstv. fjármálaráðherra. Fer það eftir því hvor stjórnarflokkurinn stýrir einstökum ráðuneytum hvernig farið verður með móttöku þessara styrkja eða er það skýr stefna ríkisstjórnarinnar að neita viðtöku þeirra? Þá er þess auðvitað skemmst að minnast að utanríkisráðherra sagði á ráðherrafundi í júlí sl. að styrkirnir (Forseti hringir.) mundu einmitt nýtast vel til að undirbúa stjórnsýsluna á Íslandi undir aðild.