tekjuskattur.
Virðulegur forseti. Varðandi tímafrestinn og afturvirknina sem þingmaðurinn bendir réttilega á þá er um það að ræða að hér er um ívilnandi afturvirkni að ræða þannig að það telst ekki vera frágangssök. Hins vegar varðandi athugasemdir þingmannsins almennt gagnvart þeirri stöðu sem hér er uppi, að hér stendur umhverfisráðherra og talar fyrir máli fjármálaráðherra, þá er það svo að hér er um stjórnarfrumvarp að ræða sem er ekki prívatmál fjármálaráðherra. Þó að hann beri pólitíska ábyrgð á þeim málum með þeim hætti þá er þetta stjórnarfrumvarp sem ég stend auðvitað að eðli málsins samkvæmt og mun jafnframt flytja framsögu fyrir málinu sem er nr. 2 á dagskrá.