139. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2010.

fjárlög 2011.

1. mál
[23:52]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Höskuldur Þórhallsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég fór á alla íbúafundina í kjördæminu nema ég komst ekki á Siglufjörð vegna veikinda en ég var á íbúafundinum á Egilsstöðum en hv. þingmaður ekki svo það sé sagt.

Ég velti fyrir mér, vegna þess að hv. þingmaður hefur bent á að við erum ekki að koma hjólum atvinnulífsins af stað. Evrópusambandið spáir á næsta ári 0,7% hagvexti. (Gripið fram í: Og ekki lýgur það?) Við erum að tala um að spárnar sem hafa komið fram, þar á meðal frá OECD sem ég veit að hæstv. utanríkisráðherra tekur hvað mest mark á, spá aðeins 1,5% hagvexti. Þess vegna spyr ég hv. þingmann aftur: Ef svo fer sem horfir er þá ekki nauðsynlegt, eins og þingmaðurinn minntist sjálfur á, að skera meira niður? Erum við þá ekki að tala um að þessar 1.200 millj. sem hv. þingmaður fullyrðir að sé varanlega dregið til baka? Mér er það til efs og þá verðum við að stöðva vegferðina strax. (Forseti hringir.) Stöðva þessa hættulegu þróun.