Stjórnarráð Íslands.
Hæstv. forseti. Þetta er góð spurning. Jú, það er hægt að rökstyðja það að færa meiri völd til eins embættis, eins stjórnmálamanns, á kostnað annarra á grundvelli þess að það geti aukið skilvirkni, að það geti falið í sér einfaldari ákvörðunartöku o.fl. En er það lýðræðislegt? Nei, það held ég ekki. Er það í anda opinna stjórnarhátta? Nei. Er það í anda valddreifingar? Nei, það er það ekki.
Það má segja að með því að fela einum manni, einu embætti, aukin völd sé ákvörðunartökuferlið, svo maður noti nú gott orð og hnitmiðað, einfaldað. Það er fljótlegra, það þarf ekki að eyða tíma í samráð, það þarf til dæmis ekki að eyða tíma í umræður (Forseti hringir.) í þinginu, það þarf ekki að fylgja formreglum o.s.frv.