Stjórnarráð Íslands.
Fjórir hv. þingmenn hafa óskað eftir að veita andsvar við ræðu þingmannsins og er því aðeins ein mínúta til ráðstöfunar í hverri umferð. Fyrst veitir andsvar hv. þm. Mörður Árnason. (MÁ: Fell frá andsvarinu.) Hann hefur fallið frá því að veita andsvar.
Þá veitir andsvar hv. þm. Róbert Marshall. Hann hefur fallið frá því að veita andsvar.
Þá veitir andsvar hv. þm. Magnús Orri Schram, 7. þm. Suðvest. en fellur frá því.
Loks hefur óskað eftir að veita andsvar við ræðu þingmannsins hv. þm. Þuríður Backman, 5. þm. Norðaust. Tekur hún nú til máls og hefur til þess eina mínútu í fyrri umferð.