140. löggjafarþing — 3. fundur,  4. okt. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[16:52]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Illuga Gunnarssyni fyrir ákaflega málefnalega ræðu en í ræðu hans kemur líka fram ákveðinn grundvallarhugmyndafræðilegur ágreiningur vinstri ríkisstjórnarinnar og Sjálfstæðisflokksins.

Varðandi hagvaxtarumræðuna sem hæstv. fjármálaráðherra kom líka inn á þá deili ég þeim skoðunum að auðvitað er mikilvægt að ná í gang hagvexti og óþarfi að dikta eitthvað upp um hagvöxt sem óljóst er um. Hæstv. iðnaðarráðherra Katrín Júlíusdóttir fór mjög vel yfir fjárfestingaráform og þær fjárfestingar sem í gang eru komnar og við ættum kannski að horfast í augu við það að hagvöxtur á Íslandi er yfir meðaltali OECD-ríkjanna og spár benda ekki til annars en sú staða muni haldast áfram á næstunni.

Ég kom hingað upp, frú forseti, út af orðum hv. þingmanns um að ríkisrekstur sé að soga of mikið til sín frá atvinnulífinu. Í þessu fjárlagafrumvarpi er verið að lækka skatta á fyrirtæki í gegnum tryggingagjaldið þó að þeir séu hækkaðir á ákveðin fyrirtæki á móti. Ég vil segja eitt. Frumtekjur ríkissjóðs eru sem nemur um 27% af vergri landsframleiðslu. Þessi rúmi fjórðungur landsframleiðslunnar er notaður í almannatryggingakerfið, heilbrigðiskerfið, menntakerfið, löggæsluna, menningarmál, utanríkismál og öll þau mikilvægu málefni sem ríkið fer höndum um og stendur að. Þar að auki eru þessir fjármunir notaðir til að dreifa aftur út með tekjujöfnunarmarkmiði. Ég spyr hv. þingmann: Telur hann að of mikið sé dregið frá íslensku atvinnulífi (Forseti hringir.) með 27% af vergri landsframleiðslu í frumtekjur?