140. löggjafarþing — 4. fundur,  5. okt. 2011.

staðgöngumæðrun.

4. mál
[17:37]
Horfa

Þór Saari (Hr):

Frú forseti. Þetta er merkilegt og áhugavert mál og ég ætla að hefja mál mitt á því að lýsa því yfir að ég hef sjálfur ekki myndað mér endanlega skoðun á staðgöngumæðrun, hvort ég styðji hana eða ekki.

Mig langar að þakka hv. þm. Davíð Stefánssyni fyrir ræðu hans vegna þess að hann veltir upp ýmsum álitamálum sem þarf einfaldlega að skoða og það er einmitt það sem við eigum að gera í þingsal og á nefndafundum þingsins. Við eigum að velta upp álitamálum um löggjöf sem þarf að skoða.

Ég tel í fljótu bragði varasamt að opna þennan glugga strax með þeim tilmælum sem þingsályktunin kveður á um, þ.e. að skipa starfshóp sem undirbúi frumvarp til laga sem heimili staðgöngumæðrun. Ég tel að það eigi að fara aðra leið og skipa starfshóp sem skili ráðherra skýrslu um málið. Fram hefur komið að það eru vankantar á skýrslu þess starfshóps sem þegar hefur verið unnið eftir, hún svarar ekki öllum þeim álitamálum sem uppi eru og þess vegna þarf að skoða málið betur.

Ég ætla að leyfa mér að velta upp mikilvægum álitamálum sem ég tel að þurfi að ræða. Ég tek það aftur fram að ég hef ekki myndað mér endanlega skoðun á málinu, með eða móti. En þetta eru risastór siðferðileg álitamál og ég sem hagfræðingur þekki náttúrlega mætavel afl og vald peninga, líka í siðferðilegum álitamálum.

Ég leyfi mér að velta upp þeirri spurningu hver afstaðan verður þegar læknar með einkastofur krefjast þess að fá að sinna svona þjónustu gegn greiðslu, samkvæmt lögum um atvinnufrelsi. Annað álitamál er hvort farið verði eftir t.d. afstöðu Viðskiptaráðs til viðskipta og samningsfrelsis sem ekki megi hamla. Þingmenn sem styðja málið hafa talað um þetta sem þjónustu. Ég vara svolítið við því að hugsa um þetta sem einhvers konar þjónustu. Þá getur það fallið undir hefðbundin viðskiptalögmál og til dæmis þjónustutilskipanir Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar eða Evrópusambandsins. Ég er ekki að segja að það geri það en þessi álitamál þarf að fara í gegnum. Hvað munu Samtök atvinnulífsins segja um þetta sem viðskiptatækifæri til nýsköpunar? Hver er afstaða þingflokka til staðgöngumæðrunar á Íslandi sem gott tækifæri undir formerkjum erlendrar fjárfestingar?

Vonandi munum við aldrei þurfa að upplifa þann dag að við förum í gegnum þessi atriði með það í huga að leyfa staðgöngumæðrun á slíkum forsendum. En þetta eru atriði sem þarf að fara í gegnum og ræða hvernig menn ætla að koma í veg fyrir að málin endi svona. Það er nefnilega stutt á milli velgjörðar og hagnaðar. Við vitum að fólk fer til Indlands vegna þess að þar er staðgöngumæðrun ódýr og þar er hægt að gera þetta. Það er ekki með nokkru móti hægt að hugsa sér það að staðgöngumæður á Indlandi séu eingöngu að þessu í velgjörðarskyni. Hagnaðarsjónarmiðið þarf því að ræða ítarlega.

Ég leyfi mér líka að benda þingmönnum á nokkuð sem ég mundi kalla martröð framtíðarinnar, eins og hún birtist í bók Margaret Atwood, kanadíska rithöfundarins, frá árinu 1985. Bókin heitir The Handmaid's Tale eða Saga þernunnar, og fjallar einmitt um þetta mál. Þetta er ekki útópía um framtíðina heldur dystópía um framtíðina um sölu á fólki til staðgöngumæðrunar, sannkallaðan hrylling á 395 blaðsíðum. Við þurfum með sanni að tryggja með einhverjum hætti, ef staðgöngumæðrun verður samþykkt á Íslandi, að þetta geti ekki skeð hér.

Að mínu viti þarf miklu meiri umræða að fara fram um þetta mál áður en frumvarp er samið. Mig langar að skora á þingmenn, bæði stuðningsmenn og andstæðinga þessa máls, að leggjast allir sem einn á árarnar um að það verði gert vandlega og með hægð því að mér brá alveg hrikalega í lok septemberþingsins þegar ég sá með hvílíku offorsi áhugamenn um málið ætluðu að keyra það í gegnum þingið á síðustu korterunum. Það hræðir mig og mig langar einfaldlega að hvetja flutningsmenn málsins til að fara sér hægar og styðja þá hugmynd að fyrst verði gerð ítarleg skýrsla sem hugsanlega megi þá nota til frumvarpsgerðar um að leyfa staðgöngumæðrun.

Þetta er mikið tilfinningamál fyrir mjög marga og ég hef fulla samúð með öllu því fólki sem þetta snertir persónulega. Sjálfur á ég eitt barn og ég þekki þann unað sem fylgir því að vera foreldri og óska öllum þess að geta orðið það. En við þurfum að fara varlega í þessum málum, sérstaklega vegna þess að þarna á bak við eru tækifæri fyrir óprúttið fólk og fyrir siðleysingja sem verður erfitt að hamla á móti þegar fram í sækir.