140. löggjafarþing — 12. fundur,  19. okt. 2011.

skuldaúrvinnsla lánastofnana -- tjón af manngerðum jarðskjálftum -- aðgerðir í efnahagsmálum o.fl.

[15:27]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F):

Virðulegi forseti. Það mætti halda að eftir að þingflokkar stjórnarandstöðunnar lögðu fram efnahagstillögur sínar hafi fulltrúar stjórnarliðsins farið á sjálfseflingar- eða hópeflisnámskeið, mæta hér með miklar furðuræður um það hve ástandið í efnahagsmálum sé gott og hrópa svo allir æft húrrahróp eftir þær undarlegu ræður.

Ég ætlaði hins vegar ekki að ræða um það, ég ætlaði að ræða um forsetann, forseta Íslands. Það hlýtur að valda okkur þingmönnum áhyggjum að sjá hvers lags bréfaskriftir hafa gengið á milli forseta Íslands og hæstv. forsætisráðherra og hvað hæstv. forsætisráðherra hefur leyft sér að fara langt út fyrir valdsvið sitt og inn á svið bæði forsetans og þingsins. Ég vil því hvetja virðulegan forseta til að ræða þessi mál við hæstv. forsætisráðherra, útskýra fyrir hæstv. forsætisráðherra hvert valdsvið hans er og hvetja hann til að láta af bréfaskriftum eins og send hafa úr forsætisráðuneytinu á Bessastaði.

Jafnframt vil ég hvetja virðulegan forseta þingsins til að útskýra fyrir þingmönnum að ekki er hægt að leyfa sér hvað sem er þegar menn ræða um forsetaembættið og forsetann. Það þarf að sýna því embætti lágmarksvirðingu. Þó að menn kunni að vera svekktir yfir því að forseti Íslands hafi lagt meira til í því að bæta stöðu ríkissjóðs, þá stöðu sem hv. þm. Magnús Orri Schram var að lýsa hér áðan, en stjórnarliðið þá þýðir ekki að fara í hefndaraðgerðir, vera fullur heiftar, skrifa — við skulum ekki kalla þetta haturspóst en reiðipóst á forsetann; og ég tala ekki um það blogg og þær yfirlýsingar sem komið hafa frá nokkrum hv. þingmönnum. Ég vil hvetja virðulegan forseta til að taka á þessu.