störf þingsins.
Frú forseti. Við erum flest hér inni sammála um að við séum komin að endimörkum niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu. Fyrir stuttu kom fram í sérstakri umræðu um fyrirhugaðan niðurskurð í heilbrigðisgeiranum að hæstv. velferðarráðherra Guðbjartur Hannesson hefði dregið mjög úr niðurskurðaráformum fyrir árið 2011 eftir vandlega yfirferð. Nýlega komu fram áhugaverðar upplýsingar í skýrslu sem skrifuð var af Boston Consulting Group um að kostnaður vegna sérfræðilækna hefði aukist um 7% síðan 2008 á meðan fjárútlát til flestra annarra þátta heilbrigðisþjónustunnar hefðu lækkað. Með öðrum orðum kemur niðurskurður í einum hluta heilbrigðisgeirans fram sem kostnaðarauki í öðrum hluta hans.
Frú forseti. Nýlega ályktaði landsfundur VG mjög eindregið gegn frekari niðurskurði í heilbrigðiskerfinu. Í þeirri ályktun kemur fram, með leyfi forseta:
„Frekari niðurskurður í heilbrigðiskerfinu getur ekki orðið án þess að þjónusta við sjúklinga skerðist alvarlega og heilsuspillandi álag á heilbrigðisstarfsfólk aukist.“
Þessi orð er ekki hægt að skilja öðruvísi en svo að landsfundur VG vilji draga til baka fyrirhugaðan niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Í gær fullyrti hins vegar formaður þingflokks VG að landsfundur VG hefði lagt blessun sína yfir niðurskurð í heilbrigðisgeiranum eins og hann birtist í fjárlagafrumvarpinu. Ég spyr því hv. þm. Guðfríði Lilju Grétarsdóttur hvort þetta sé réttur skilningur hjá þingflokksformanninum.