störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það væri vissulega saga til næsta bæjar ef landsfundur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs sem hingað til hefur verið álitinn þokkalega róttæk samkoma ályktaði sem svo að loks þegar búið væri að loka líknardeild mætti íhuga að endurskoða niðurskurð í heilbrigðismálum. Umræður á landsfundi voru mjög skýrar og þar komu skýrt fram þungar áhyggjur landsfundarfulltrúa af boðuðum niðurskurði í heilbrigðiskerfinu og raunar af þeim niðurskurði sem nú þegar er orðinn í heilbrigðisþjónustunni.
Það kom einnig fram að landsfundarfulltrúar VG teldu ekki að þeir ættu að standa í málamiðlunum heldur einmitt að setja sitt mál og sínar skoðanir skýrt fram. Það væri annarra að standa í málamiðlunum. Ég lít svo á að í rauninni sé mjög auðvelt að lesa út úr þessari ályktun landsfundar, maður þurfi ekki annað en að lesa orðin sem í þeirri ályktun standa þar sem einmitt kemur fram að landsfundur VG álykti gegn frekari niðurskurði í heilbrigðiskerfinu. Ég vitna, með leyfi forseta:
„Ljóst má vera að heilbrigðiskerfið er löngu komið að þolmörkum þar sem skorið var niður í málaflokknum undir einkavæðingarstefnu fyrri ára.“
Ég veit ekki alveg hvernig hægt er að álykta skýrar í þessum efnum og hlýt að líta á það sem mat landsfundar að það beri að endurskoða boðaðan niðurskurð í heilbrigðisþjónustunni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)