vestnorrænt samstarf á sviði kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerðar.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar frá Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins, þskj. 206, mál 201, um vestnorrænt samstarf á sviði kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerðar.
Tillagan hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að skora á mennta- og menningarmálaráðherra að láta gera athugun á möguleikum þess að auka vestnorrænt samstarf um framleiðslu á kvikmyndum og sjónvarpsþáttum sem hefjist með ráðstefnu með þátttöku fagfólks á sviði kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerðar í vestnorrænu löndunum þremur.“
Tillaga þessi er lögð fram á grundvelli ályktunar Vestnorræna ráðsins, nr. 2/2011, sem samþykkt var á ársfundi ráðsins 24. ágúst 2011 á Bifröst.
Eitt af sérkennum vestnorrænu landanna er sérstakt landslag og náttúra sem gefur fjölmarga áhugaverða möguleika á framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsþátta. Framleiðsla á slíku efni er þó nokkuð takmörkuð á Vestur-Norðurlöndum, að hluta til vegna skorts á tækniþekkingu og reynslu.
Vestnorræna ráðið telur að aukið samstarf á þessu sviði gæti falið í sér mikilvægt framlag til menningarstarfsemi landanna þriggja og veitt vestnorrænu löndunum möguleika á að læra af reynslu hvers annars og þekkingu á þessu sviði. Aukið samstarf og tækniþekking á sviði kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerðar gæti einnig haft í för með sér efnahagsleg tækifæri, t.d. með auknum útflutningi á vestnorrænum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum til annarra landa.