140. löggjafarþing — 28. fundur, 29. nóv. 2011.
fjárlög 2012.
1. mál
Virðulegi forseti. Við greiðum núna atkvæði um hvort tillaga mín þess efnis að bætur atvinnulausra og lífeyrir hækki, ekki aðeins um 5.500 heldur 11.000 kr., megi koma á dagskrá. Ástæðan fyrir því að þessi breytingartillaga við fjárlagafrumvarpið kemur svona seint fram er sú að ritarar fjárlaganefndar komust ekki í að vinna breytingartillöguna fyrir mig þrátt fyrir að ég hafi sent inn beiðni þess efnis fyrir tveimur vikum. Sökin er ekki ritaranna.