140. löggjafarþing — 28. fundur,  29. nóv. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[19:12]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Kristján Þór Júlíusson) (S) (andsvar):

Forseti. Hæstv. ráðherra ræddi hér mikið um erfiðleikana við að koma böndum á hallann og talaði um að menn væru komnir langa leið frá 216 milljarða halla árið 2008. Það er alveg rétt. En það sem við höfum haldið fram er að hallatölurnar sem reiddar eru fram, bæði í fjáraukanum og í fjárlögunum, fela ekki í sér allar þær skuldbindingar sem við vitum að við stöndum frammi fyrir. Meðal annars höfum við rætt skuldbindinguna við uppgjörið á Sparisjóði Keflavíkur og milli Landsbankans og ríkis í þeim efnum. Hér er talað um að ekki eigi að gefa upp fyrir fram út á hvað þær viðræður ganga. Það er einhver ástæða fyrir því að málið er komið í úrskurðarnefnd og ég vænti þess að þar hafi menn reynt að útkljá málin og gefið upp afstöðu sína.

Ég spyr hæstv. ráðherra: Hvers vegna í ósköpunum geta menn ekki fallist á það að sú tillaga og sú ósk sem Ríkisendurskoðun hefur sett fram sé tekin inn til gjalda vegna þess að það liggur fyrir samkomulag og gott ef ekki úr munni hæstv. ráðherra sjálfs að (Forseti hringir.) að lágmarki þyrfti ríkið að reiða fram 11 milljarða kr.?