140. löggjafarþing — 33. fundur,  7. des. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[17:06]
Horfa

Atli Gíslason (U):

Frú forseti. Þetta er bæði stór og lítill liður. Hann er lítill að því leyti að það er verið að gera tillögu um 1,2 milljónir til Þórbergsseturs til viðbótar þeim 8,8 milljónum sem voru á fjárlögum. Hún er stór að því leyti að hún er sett fram til að fullnægja samningi sem menntamálaráðuneytið hefur gert við Þórbergssetur. Hún gengur út á að standa við gerða samninga, það er ekki flóknara. Alþingi getur ekki verið þekkt fyrir það að standa ekki við gerða samninga.

Ég tek líka fram að þetta setur er afar merkilegt, það er setur um fremsta listamann íslenskrar tungu á síðustu öld. Ég hvet þingmenn til að greiða þessari litlu stóru tillögu atkvæði sitt.