140. löggjafarþing — 35. fundur,  13. des. 2011.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

195. mál
[15:02]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Helgi Hjörvar) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að ég þurfi út af fyrir sig ekki að fara mörgum orðum um það, ég átti auðvitað við þær breytingartillögur sem nefndin gerir, bæði á fjársýsluskattinum og sömuleiðis í þessu máli, þær einkennast af þessum sjónarmiðum. Það er ljóst að ekki verður hjá því komist að auka nokkuð tekjuöflun ríkissjóðs á næsta ári og frumvarp þess efnis lá fyrir og þeirri tekjuöflun verðum við í þinginu að skila. Það hefur auðvitað neikvæð áhrif að þurfa að taka meira í ríkissjóð en áður. Það stafar einfaldlega af því að hér er glórulaus halli og eins og hv. þingmaður veit eru skuldir í dag skattar á morgun.

Við söfnuðum miklum skuldum í hruninu og afla þarf tekna á móti þeim. Við erum einfaldlega að lágmarka neikvæð áhrif á sparnað með breytingartillögum okkar, bæði hvað varðar auðlegðarskattinn og séreignarsparnaðinn, og síðan erum við að draga úr fyrirhuguðum skatti á laun í fjármálakerfinu og innleiða fremur skatta á hagnað þar. Það er eðli breytinganna.