140. löggjafarþing — 45. fundur,  19. jan. 2012.

samgönguáætlun 2011--2022.

393. mál
[15:07]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ber einnig virðingu fyrir þeim sjónarmiðum sem hæstv. ráðherra hefur varðandi forgangsröðun og hvernig hann rakti það hér, en eins og ég kom inn á í máli mínu koma þessi sjónarmið ágætlega fram í texta í þingsályktunartillögunni, þessari samgönguáætlun. Vandinn er hins vegar sá að takmarkið næst ekki með áætluninni sem lögð er fram. Það er full ástæða til að hafa miklar áhyggjur af því hversu lítið fjármagn er áætlað í vegagerð og að heilu landsvæðin skuli ekki fá neitt fjármagn allt til ársins 2022 og hvaða áhrif það muni hafa á atvinnulíf og byggðaþróun á viðkomandi landsvæðum.

Við skulum átta okkur á því að menn horfa til þeirra fjárveitinga sem við setjum í þessa áætlun núna, hvort sem eru sveitarfélög, verktakafyrirtæki, þeir sem standa að uppbyggingu í atvinnulífi eða öðru. Þeir horfa til þessarar áætlunar þegar þeir skipuleggja næstu árin varðandi tækjakost, starfsfólk og fleira. Það er alveg ljóst að þegar við skoðum áætlunina sjálfa er hún gríðarlegt áhyggjuefni fyrir mjög stór landsvæði og það er ekkert sem fær því breytt. Líkt og ég kom inn á áðan ber ég þó fulla virðingu fyrir sjónarmiðum hæstv. ráðherra hvað varðar þá þætti sem ég hef rakið í máli mínu, en því miður nást þau sjónarmið ekki fram með þessari áætlun.