140. löggjafarþing — 45. fundur,  19. jan. 2012.

samgönguáætlun 2011--2022.

393. mál
[16:20]
Horfa

Jónína Rós Guðmundsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég held að það sé alveg rétt að við þurfum að fylgjast mjög vel með verði á fargjöldum innan lands, ég held að við deilum þeirri skoðun, og við það þarf að fá ákveðna greiningu á því hvernig verði flugfargjalds er skipt niður. Síðan er ég sammála því að við þurfum að skoða alla möguleika og allar tiltækar leiðir til að hægt sé að fara í þá jarðgangagerð sem þarf í okkar dreifbýla, hálenda og vogskorna landi. Ég held að það skipti mjög miklu máli. En eins og ég segi, það er örugglega hægt að fá frekari upplýsingar um hvar umræðan um Norðfjarðargöng og hugsanlega veggjaldatöku þar er stödd.