140. löggjafarþing — 46. fundur,  20. jan. 2012.

afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.

403. mál
[17:45]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Það var nú eftir hv. þm. Álfheiði Ingadóttur að fara í þennan farveg þar sem þingmaðurinn veit að formaður Framsóknarflokksins eignaðist barn í gær og er að sinna því, en að sjálfsögðu kemur það ekki við þennan hv. þingmann.

Ég vil þó segja að það að láta eins og hægt sé að vísa þessari tillögu til bankaráðs Seðlabankans eða Þingvallanefndar eins og einhverjir gerðu hér í gríni er að sjálfsögðu léttúðugt. Það er verið að tala niður mál er snertir (Gripið fram í.) mannréttindi og hugsanlega æru einstaklings. Það finnst mér ekki gott. Hv. þingmaður ætti kannski að huga aðeins að því hvernig hún nálgast þetta mál.

Frú forseti. Ég ítreka það sem ég sagði áðan að það væri mikilvægt ef hæstv. forsætisráðherra kæmi og flytti ræðu, segði skoðun sína (Forseti hringir.) á þessu mikilvæga máli. Ég óska eftir því að forseti setji sig í sambandi við forsætisráðherra og komi þessari ósk á framfæri.