sjálfbærar hvalveiðar.
Frú forseti. Ég get tekið undir það með hv. fyrirspyrjanda og hæstv. ráðherra að mikilvægt er í þessari umræðu að menn hafi alltaf á hreinu hvað er verið að tala um þegar rætt er um sjálfbærni í þessu samhengi. Ég vil bara koma þeirri skoðun á framfæri að þetta mál, að því er varðar hvalveiðarnar, er mál sem við erum sí og æ að takast á um á alþjóðavettvangi. Það er mjög mikilvægt í þeirri umræðu að ekki sé stundum verið að vísa til hinnar líffræðilegu þröngu skilgreiningar á sjálfbærni og stundum til hinnar breiðu skilgreiningar sem ráðherra vakti ágætlega athygli á síðast, þar sem vísað er til efnahagslegrar, félagslegrar og umhverfislegrar sjálfbærni.
Ég er þeirrar skoðunar að þegar heildarhagsmunir Íslands eru metnir í þessu samhengi sé mjög mikilvægt að við horfum á málið út frá hinni breiðu skilgreiningu á því hvað er sjálfbært fyrir hagkerfi okkar í heild sinni og fyrir hagsmuni okkar á heildina litið, m.a. í samskiptum við aðrar þjóðir.