heildstæð orkustefna fyrir Ísland.
Virðulegi forseti. Ég get ekki úttalað mig um það vegna þess að ég hef ekki lesið þessa skýrslu staf fyrir staf eða orð fyrir orð um heildstæða orkustefnu hvað varðar jöfnun orkukostnaðar. Hins vegar er fjallað um það í skýrslunni að æskilegt sé að gefa betur í með því að afla og finna innlenda orkugjafa til að uppræta ýmislegt sem við viljum, finna heitt vatn, búa til hitaveitur í staðinn fyrir dýra rafhitun. Þetta er verið að gera. Við notum niðurgreiðslukerfið meðal annars í því. Þetta ræddum við í atvinnuveganefnd ekki alls fyrir löngu, þeir sem þar sitja, í framhaldi af útkomu skýrslu sem nokkrir aðilar á köldum svæðum unnu að og skiluðu til hæstv. iðnaðarráðherra. Þar voru mjög metnaðarfullar og góðar tillögur sem ég hef sagt og skal segja einu sinni enn að eru þess eðlis að við eigum að gefa þeim miklu meiri gaum. Það er kannski fljótvirkasta leiðin til að jafna orkukostnaðinn til húshitunar en jafnframt til atvinnusköpunar og fyrirtækjareksturs. Við sjáum líka og höfum heyrt og það heyrði hv. þingmaður sem sat í iðnaðarnefnd á síðasta ári hvernig til dæmis orkukostnaður getur lækkað í dreifbýli, á einum þéttbýlisstað í dreifbýli ef svo má að orði komast, að ef íbúarnir væru ekki 195 heldur 201 mundi það hafa mikla lækkun í för með sér. Þetta er í raun og veru galið kerfi sem býr til svona forsendur um verðlagningu á orku.
Það sem ég er einfaldlega að segja, virðulegi forseti, er að við höfum önnur tækifæri til að lagfæra þessa hluti þó að þeir séu ekki skýrðir hér í skýrslu starfshóps um mótun heildstæðrar orkustefnu. En ég þykist vita eða vil trúa því að þetta sé þar þó að ég geti ekki bent akkúrat á einhverja eina blaðsíðu hvað það varðar.