140. löggjafarþing — 68. fundur,  12. mars 2012.

gjaldeyrismál.

608. mál
[18:18]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Almennt hef ég áhyggjur af því að (Gripið fram í.) títtnefnd snjóhengja haldi áfram að stækka miðað við óbreytta stefnu. Við ræðum það augljóslega ekki hér á nokkrum sekúndum og ég fer ekki fram á það við hv. þingmann.

Ég spurði hv. þingmann líka út í tímasetningarnar því að það gerðist ekkert nýtt um helgina sem útskýrir hraðann. Ég vil trúa því að þær eftirlitsstofnanir sem fylgjast með þessu, eins og Seðlabankinn, hafi verið búnar að gaumgæfa þetta fyrir löngu og séð þetta fyrir. Ég veit að það eru fleiri en ég og kannski allir sem eru að velta fyrir sér af hverju menn geri þetta á elleftu stundu. Hvers vegna hafa menn ekki gripið til einhverra aðgerða fyrr?