140. löggjafarþing — 77. fundur,  27. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[20:16]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Tryggvi Þór Herbertsson á yfirleitt mjög auðvelt með að skilja mjög flókna hluti, ekki síst þá sem varða hagfræðimódel og ýmsir aðrir skilja ekki baun í bala í. Hvað þetta varðar er svar mitt (Gripið fram í.) við spurningu hv. þingmanns það að ég vil setja sem minnstar hömlur á þennan rétt þjóðarinnar og að það sama gildi um minni hluta Alþingis. Ég hef efasemdir um að rétt sé að hafa þennan rétt áfram hjá forsetanum þegar hinir neyðarhemlarnir tveir eru komnir af því að ég vil nálgast þetta út frá lýðræðinu og það er ekki lýðræði þegar einn tekur ákvörðun, það hlýtur að þurfa í það minnsta einhvern einn í viðbót. Í þessu tilviki mundi ég vilja hækka frekar aðeins þröskuldinn varðandi þjóðina þannig að hlutfallið sem gæti farið fram á bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu yrði ekki svona lágt. Að sama skapi held ég að það mundi breyta vinnubrögðunum á Alþingi og yrði til mikilla bóta ef minni hluti Alþingis gæti vísað málum í þjóðaratkvæði.