ummæli ráðherra um breytingar á Stjórnarráðinu.
Virðulegi forseti. Ég vil einmitt ræða fundarstjórn forseta og vil beina þeirri spurningu til hæstv. forseta hvernig staðið geti á því að mál, eins og fram hefur komið hér, sem 1. flutningsmaður telur að brjóti jafnvel í bága við stjórnarskrá Íslands geti verið þingtækt. Ég óska eftir að hæstv. forseti svari því.
Síðan er það, og ég tek undir með hv. þm. Einari K. Guðfinnssyni, algjör reginmisskilningur hjá hv. þm. Árna Þór Sigurðssyni, sú útskýring sem hann flutti hér. Misskilningurinn liggur í því að það er forsætisráðherrann sem leggur fram þingmál sem hún telur sjálf að brjóti í bága við stjórnarskrá. Það er viljaverk sem hún tekur þá væntanlega ákvörðun um að gera og í því felst alvarleiki málsins, (Forseti hringir.) ekki í einhverjum lagatæknilegum spekúlasjónum.