lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Vandamálið sem við stöndum frammi fyrir stafar af því að hæstv. ríkisstjórn hefur gert það að plagsið sínum að koma inn með 50–60 mál á síðasta degi sem það er leyfilegt og leggja þau fyrir þingið. 54 mál voru lögð fyrir þingið núna á síðasta degi. Það er vandinn sem við er að glíma.
Ef við afgreiðum þessi mál ekki umræðulaust er alltaf byrjað á sama söngnum, þetta er sami söngurinn og við heyrðum í fyrra og líka í hittiðfyrra: Nú er stjórnarandstaðan byrjuð í málþófi. Ætlast er til, eins og hæstv. forsætisráðherra sagði, að við stöndum bara umhugsunarlaus við færibandið og afgreiðum málin. Það á að breyta þinginu í fyrirbrigði eins og við sáum í gömlu Chaplin-myndinni Modern Times , Nútímanum, þar sem verkamenn standa bara og skrúfa skrúfurnar, það er ætlast til að við afgreiðum málin þannig frá okkur. En þannig er það bara ekki í nútímanum. Hv. þm. Álfheiður Ingadóttir fór rangt með áðan. Hún sagði að ég hefði tekið ágætismál í gíslingu. Ég flutti kortersræðu. Ef það er málþóf (Forseti hringir.) er það stysta málþóf í þingsögunni.