140. löggjafarþing — 94. fundur,  3. maí 2012.

kreppa krónunnar.

[12:08]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Lilju Mósesdóttur fyrir þessa umræðu.

Núverandi gjaldeyrishöft hafa haft áhrif á framtíðarfyrirkomulag í gjaldeyrismálum. Vinna er nú í gangi við mótun stefnu um framtíðarfyrirkomulag í gjaldeyrismálum og fulltrúar allra stjórnmálaflokka koma að þeirri vinnu. Það liggur fyrir að afnám gjaldeyrishafta verður ekki í bráð þó mikilvægt sé að unnið sé að því markvisst og í áföngum án þess að hætta skapist á óstöðugleika í efnahagslífinu með aukinni verðbólgu. Það er eitthvað sem við þurfum ekki á að halda. Því er brýnt að nauðsynleg skilyrði séu til staðar þegar höftunum verður aflétt. Það liggur fyrir að unnið er að umfangsmiklum breytingum á regluverki fjármálakerfisins svo tryggja megi stöðugleika þegar núverandi gjaldeyrishöft verða afnumin og eðlileg viðskipti komast aftur á á milli landa með gjaldeyri.

Íslenska krónan hefur samt á margan hátt haft jákvæð áhrif og dugað okkur vel í að endurreisa efnahagslíf landsins, hvað sem framtíðin mun bera í skauti sér. Útflutningsgreinarnar hafa hagnast mjög mikið eins og við vitum. Það hefur hjálpað þjóðinni við að endurreisa efnahaginn, en vissulega hefur staða krónunnar bitnað á almenningi með hærra vöruverði á innfluttum varningi og það hefur komið hart niður á mörgum.

Það eru engar töfralausnir til að ég tel, og brýnt að vanda vel til verka í mótun nýrrar peningastefnu og losun gjaldeyrishafta, því þegar upp er staðið verðum við að horfa til heildarhagsmuna þjóðarinnar og sérstöðu landsins og ólíks hagkerfis hér miðað við í löndunum í kringum okkur.