breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég tek undir með hv. þm. Ásmundi Einari Daðasyni um tímasetninguna á þessari breytingu á Stjórnarráðinu, nú þegar tæpt ár er í kosningar ef ekki verður kosið fyrr. Síðan á ráðuneytaskipanin að taka gildi 1. september, þá er um það bil hálft ár í kosningar. Ég er algjörlega sammála hv. þingmanni um að þetta er röng tímasetning. Hafi ríkisstjórnin ætlað sér að gera breytingar á Stjórnarráðinu, sem og þessi ríkisstjórn hefur þegar gert, árið 2009, veltir maður fyrir sér af hverju þeim breytingum var ekki öllum hrint í framkvæmd á einum og sama tíma eða á miðju kjörtímabili þegar menn höfðu áttað sig á stöðunni. Vissulega tók ríkisstjórnin við á erfiðum tímum í lífi þjóðar og þá var forgangsröðunin kannski ekki sú að breyta skipan í Stjórnarráðinu en það hefði verið hægt að gera og vinna á miðju kjörtímabili. Tímasetningin er röng að mínu mati.
Það læðist að mér sá grunur, virðulegur forseti, eins og ég sagði í ræðu minni, að hér sé meðal annars verið að draga athyglina frá því að við höfum ekki enn afgreitt stór og mikil verkefni sem skipta flest heimili og fyrirtækin í landinu og þar af leiðandi atvinnulífið meginmáli. Við erum ekki að gera það með breytingum á Stjórnarráðinu. Því má þessi tillaga bíða.