breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegi forseti. Það er í sjálfu sér ekki boðlegt hvernig forseti kýs að meðhöndla hv. þingheim í kvöld. Það þarf að gefa einhver skýr svör um það hvað stendur til að vera langt fram á morgun. Það er alveg augljóst að ef menn ætla að halda áfram fram undir morgun þarf að fresta nefndafundum og þeim störfum sem standa fyrir dyrum í fyrramálið. Vitna ég þar til orða forustumanna ríkisstjórnarinnar. Þeir hafa haft mörg orð um það og komið að því í ræðum sínum við sambærileg tilefni áður að það hafi ekki tíðkast á Alþingi að halda tvo næturfundi í röð. Nú erum við komin langt inn í nóttina og bráðum fer að birta af morgni. Það er full ástæða til að taka undir þá gagnrýni sem þeir hafa komið fram með. (Forseti hringir.) Það getur varla verið vilji þingsins að halda áfram. Ég vitna til orða (Forseti hringir.) forustumanna ríkisstjórnarflokkanna, og vilji okkar í stjórnarandstöðunni er skýr, við viljum fá að halda áfram með þetta mál (Forseti hringir.) á morgun. Þess vegna bið ég hæstv. forseta að taka tillit til þess (Forseti hringir.) að þingheimur vill ekki vinnubrögð eins og hér eru stunduð núna.