stuðningur Hreyfingarinnar við ríkisstjórnina.
Virðulegi forseti. Ég hef tekið eftir því eins og margir aðrir að þingmenn Hreyfingarinnar taka ábyrgt á málum í þingi og skoða hvert mál eftir efni þess, horfa ekki á hvaðan það kemur heldur fyrst og fremst hvort það muni gagnast þjóðinni. Það hafa þeir margsýnt í þinginu. Komið hefur í ljós að Hreyfingin á samleið með ríkisstjórnarflokkunum í mörgum málum, ekki síst í stjórnarskrármálinu, stjórnarráðsmálinu og örugglega að hluta til í fiskveiðistjórnarmálum og síðan skulum við sjá til.
Nokkur af þessum málum hafa verið til skoðunar milli Hreyfingarinnar og stjórnarflokkanna af því að við teljum að Hreyfingin taki ábyrgt á málum öfugt við flesta aðra — ég segi flesta aðra — í stjórnarandstöðunni. Við höfum átt tvo eða þrjá ágæta fundi með Hreyfingunni. Í sumum málum eigum við samleið. Önnur mál eru snúnari og erfiðari eins og tillögur Hreyfingarinnar um almenna skuldaniðurfærslu. Engu að síður er verið að skoða mjög náið fleti á því máli með Hreyfingunni og við höfum farið í mikla greiningu á tillögum hennar. Sú greining stendur enn yfir. Ég get ekki sagt til um hvenær niðurstaða fæst í þau mál sem við höfum verið að ræða. Það er sennilega verið að ræða þetta þessa stundina og verður rætt í dag og svo verðum við bara að sjá til með framhaldið. En eitt er víst, ég ætla ekki að fara að lýsa nákvæmlega þeim viðræðum sem fara eiga (Gripið fram í.) fram milli Hreyfingarinnar og (Forseti hringir.) stjórnarflokkanna og alls ekki að fara í einhverjar samningaviðræður úr þessum ræðustól að því er varðar þau mál sem við ræðum nú við Hreyfinguna.