störf þingsins.
Virðulegi forseti. Þetta hafa verið athyglisverðar umræður í dag. Fram hefur komið í ræðum þingmanna Samfylkingarinnar að þeir vita ekki neitt út á hvað Evrópusambandið gengur, hafa bara ekki hugmynd um það eins og hv. þm. Mörður Árnason sagði í þessari síðustu ræðu. Svo er það alveg dæmigert fyrir þennan flokk að gera lítið úr samþingmönnum sínum, eins og virðulegir þingmenn Samfylkingarinnar hafa talað um hv. þm. Guðfríði Lilju Grétarsdóttur í dag.
Hv. þm. Baldur Þórhallsson fór yfir það að ég teldi að ríkisstjórnarflokkarnir héldu þinginu gíslingu. Það er rétt. Nú hefur komið í ljós að þingið er laust undan gíslingu ríkisstjórnarflokkanna í ESB-málinu vegna þess að myndast hefur nýr meiri hluti í hv. utanríkismálanefnd. Síðan ég settist á þing hefur tillaga legið í utanríkismálanefnd, á þremur þingum, um að þjóðin fái að koma að því í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort halda eigi þessu aðildar- og aðlögunarferli áfram eða ekki. Nú er tækifærið. En hvað gerist þá? Þá kemur hv. þm. Þór Saari í ræðustól, lýsir því yfir að samningar hafi slitnað í gærkvöldi og þess vegna muni Hreyfingin ekki styðja ríkisstjórnina meir. En svo, þegar við sjáum að við höfum tækifæri á að fella þessa verklausu ríkisstjórn kemur hv. þingmaður í sömu ræðu og segir: Við ætlum að sjálfsögðu að styðja það að ríkisstjórnin fái að halda áfram með umsóknarferlið sitt. Þetta er hræsni, frú forseti, en svona hafa þingmenn Hreyfingarinnar því miður unnið.
Tækifærið skapaðist í morgun á fundi utanríkismálanefndar en ég fagna því að nú skuli tillaga mín varðandi þessa þjóðaratkvæðagreiðslu fá forgang í þinginu. Bið ég forseta þess til lengstra laga að koma tillögunni á dagskrá eftir þriggja ára bið. Þjóðin á að segja sitt álit nú og ekkert annað.