ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Virðulegur forseti. Mín skoðun er sú að þegar aðildarviðræður eru hafnar eigi ekki að hætta í miðjum klíðum. Það á ekki að gera nema forsendubrestur hafi orðið. Slíkur forsendubrestur hefur ekki orðið.
Framsóknarmenn ályktuðu á síðasta flokksþingi að hagsmunum Íslands væri betur borgið utan ESB. Á síðasta flokksþingi var líka rætt um hvort draga ætti aðildarumsóknina til baka og flutt tillaga þess efnis. Flokksþingið felldi tillöguna um að draga aðildarumsóknina til baka, ekki með miklum mun en tillagan var samt felld. Ég tel að klára eigi vinnuna sem hafin er, gefa þjóðinni svo kost á að kynna sér vel niðurstöður aðildarviðræðna. Síðan á að fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem hver kosningarbær Íslendingur gerir upp við sig hvort hann telji hagsmunum okkar betur borgið utan eða innan ESB.
Ég segi því nei við þessari breytingartillögu.