140. löggjafarþing — 106. fundur,  24. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[13:41]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Hér er spurning sem er orðuð svo:

„Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi?“

Hér segir ekkert um það hvernig ákvæðið eigi að vera. Hér segir ekkert um það hvort átt er við ákvæði um þjóðkirkju sem er sambærilegt við það sem er í núgildandi stjórnarskrá. Það segir heldur ekkert um það hvort átt er við ákvæði sem er eitthvað í líkingu við það sem kemur fram í tillögum stjórnlagaráðs. Sá sem greiðir atkvæði um þetta hefur ekki hugmynd um hvernig niðurstaðan úr atkvæðagreiðslunni verður túlkuð.

Ég segi nei.