140. löggjafarþing — 106. fundur,  24. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[13:42]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Er eitthvað hægt að hafa spurninguna opnari en þetta? Spurningin er:

„Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi?“

Hvers konar þjóðkirkju? Hvernig á ákvæðið að vera? Við erum 63 í þessum sal, oft og tíðum, hv. þingmenn. Ég er nokkuð sannfærður um að okkur tækist ef við einbeittum okkur, og þyrftum að gera það, að komast að allra handa skilgreiningum um það hvernig þjóðkirkju við mundum vilja sjá.

Hér er annað mjög gott dæmi um að það er verið að setja fram spurningar sem eru gríðarlega óskýrar og hver og einn mun geta túlkað eftir sínu höfði þegar niðurstaða kemur. Það er dæmi um það hvernig á ekki að gera hlutina. Þeir sem fara svona fram eru ekki (Forseti hringir.) að hjálpa hugmyndinni um að nýta þjóðaratkvæðagreiðslu við stjórn landsins.